Frístundabíll fyrir börn og unglinga
Tilraunaverkefni um aukin lífsgæði í Hafnarfirði.
 
Nú er að hefjast metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber vinnuheitið FRÍSTUNDABÍLLINN. Um er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí 2010 og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið sem ráðast mun einkum af þeim móttökum sem Frístundabíllinn hefur fengið. Til að gera þetta að verkefni mögulegt hafa eftirtalin fyrirtæki styrkt framkvæmd þess: Alcan á Íslandi, N1, Hópbílar og Fjarðarkaup, allt fyrirtæki sem hafa dyggilega stutt hafnfirsk íþrótta- og tómstundamálefni, auk Hafnarfjarðarbæjar sem veitir verkefninu afar þýðingarmikinn stuðning.   
 
Megintilgangurinn með verkefninu að veita örugga og góða akstursþjónustu sem tekur mið af frístundastarfi í Hafnarfirði fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-20 ára í tæpa 6 tíma á dag, frá kl.15.40 til kl.21.20 alla virka daga. Tímatafla Frístundabílsins miðast við að meginþorri íþrótta- og tómstundastarfs fari fram innan þessa tímaramma og er leiðakerfið hannað með hliðsjón af staðsetningu tómstundastarfsemi víðs vegar um bæinn. Akstur með Frístundabílnum er þó ekki bundinn við íþrótta- og tómstundastarf heldur stendur þjónustan öllu fólki á framangreindum aldri til boða .
 
Bænum er skipt niður í fjögur svæði sem þjónustuð verða með 4 bílum á 20 mínútna fresti með skiptistöð  við íþróttahúsið Strandgötu. Ekið verður um öll stærstu hverfi bæjarins. Í bílunum verður auk bílstjóra þjónustufulltrúi sem mun gæta þess að allt fari vel fram. Ekið verður inn að öllum tómstunda- og íþróttasvæðum bæjarins á þann hátt að leitast verður við að koma í veg fyrir að farþegar þurfi að fara yfir umferðagötur þar sem hægt er að koma því við. Allar strætóstoppistöðvar á þessum leiðum verða nýttar auk nýrra stoppistöðva inni í hverfunum, svokallaðra “Vinkstöðva”. Verð fyrir umrædda þjónustu er kr. 6.000 fram til 31. maí eða sem samsvarar kr. 1.500 á mánuði. Hægt verður að dreifa greiðslum yfir tímabilið.
 
Það er trú þeirra sem að verkefninu standa að það feli í sér margvíslegan ávinning, meðal annars efnahagslegan og umhverfislegan, auk þess að stuðla að auknum lífsgæðum. Ágætu Hafnfirðingar við hvetjum ykkur til að gefa þessu verkefni tækifæri á að dafna og þroskast með því að kaupa áskrift, prófa þjónustuna og um leið að vera dugleg að láta okkur vita hvernig okkur gengur að þjónusta ykkur og hvað við gætum gert betur. Allar ábendingar eru vel þegnar. Með því að smella á hnappinn fyrirspurnir geti þið sent okkur ábendingar og sagt ykkar skoðun.

Með kærri kveðju,

starfsfólk Frístundabílsins.

 

 



Hópbílar hf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími 599 6000 | Fax 599 6001| Vaktsími 822 0080| hopbilar@hopbilar.is | kennitala 430192-2059