Ný hjólastólarúta

Hópbílar eru stoltir að hafa pantað einn af nýju hópferðabílunum í ár sem hjólastólabíl. Í bílnum er sérútbúin hjólastólalyfta sem uppfyllir ströngustu öryggis og gæðakröfur. Hér er um að ræða bíl sem tekur 29 manns í sæti, en með því að taka úr 22 sæti er rúm fyrir allt að 10 hjólastóla (allt eftir stærð stólanna). Hér er um nýja þjónustu að ræða hjá Hópbílum .Nýi bíllin gefur hreyfihömluðum möguleika á að ferðast  m.a. í skipulögðum ferðum um landið. Er það von okkar að hér sé um kærkominn ferðamöguleika fyrir hreyfihamlaða. Bíllinn er af gerðinni Mercedes Bens Atego árgerð 2005. Bíllinn er með, DVD-spilara, myndbandstæki, geislaspilara, kassettutæki og öllu því helsta sem tilheyrir í svona bílum. Að sjálfsögðu eru þriggja punkta belti í öllum sætum í þessum bíl.  (sjá myndir)



 






 



  Hópbílar hf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími GSM 822-0080