
Í hádeginu í dag skrifuðu Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Ólafur Teitur Guðnason frá Alcan , Elías Bjarni Guðmundsson frá N1, Gísli Friðjónsson frá Hópbílum og Gísli Sigurbergsson frá Fjarðarkaupum undir samkomulag um rekstur Frístundabílsins.
Verkefnið gengur út á að veita örugga og góða akstursþjónustu fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 - 20 ára í tæpar sex klukkustundir á dag, eða frá kl.15:40 til kl. 21:20 alla virka daga. Fyrirhuguð tímatafla miðast við að meginþorri íþrótta- og tómstundastarfs fer fram innan þessa tímaramma.
Tilgangurinn er að draga úr því að foreldrar þurfi að standa í tímafreku „skutli“ til að koma börnum sínum til og frá íþrótta- og tómstundastarfi, með því að bjóða upp á raunhæfan og öruggan valkost.
Fjórir bílar frá Hópbílum munu frá og með mánudeginum 25. janúar n.k. þjónusta öll helstu hverfi Hafnarfjarðar á 20 mínútna fresti á ofangreindum tíma dagsins samkvæmt leiðakerfi sem nálgast má á vefnum
www.fristundabillinn.is.
Frítt verður í bílana út janúar. Skiptistöð verður við Íþróttahúsið Strandgötu. Ekið verður inn að öllum tómstunda- og íþróttasvæðum bæjarins á þann hátt að leitast verður við að koma í veg fyrir að farþegar þurfi að fara yfir umferðagötur þar sem hægt er að koma því við. Í hverjum bíl verður, auk bílstjóra, þjónustufulltrúi sem gegnir eftirlits- og öryggishlutverki og gætir þess að allt fari vel fram. Allar strætóstöðvar á leiðakerfi Frístundabílsins verða nýttar auk nýrra stöðva, svokallaðra „Vinkstöðva“. Verð fyrir umrædda þjónustu er kr. 6.000 í fjóra mánuði, eða sem samsvarar kr. 1.500 á mánuði.
Frístundabílinn er tilraunarverkefni sem stendur fram til 31.maí en þá verður tekin ákvörðun um framhaldið.
Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess,
www.fristundabillinn.is, og hjá Pálmari Sigurðssyni hjá Hópbílum í síma 8220098.