|
Um fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir: Við hjá Frístundabílnum förum góðfúslega fram á það við ykkur kæru farþegar að þið verðið dugleg að hjálpa okkur við að móta þessa þjónustu svo hún komi til með að nýtast okkur Hafnfirðingum sem allra best. Við lítum á allar ábendingar sem tækifæri til að bæta þjónustuna og fögnum þeim. Við sem störfum við að þjónusta ykkur leggjum mikinn metnað í að verkefnið gangi sem allra best og nái að uppfylla þarfir flestra. Ef þú ert með ábendingu,fyrirspurn eða óánægður og sérð ástæðu til að segja okkur frá því, bregðumst við vel við, göngum strax í málið og leysum það eins fljótt og hægt er. Þú smellir bara hér fyrirspurnir og ábendingar og sendir okkur á netfangið fristundabillinn@fristundabillinn.is . Einnig getur þú bara hringt í síma 599-6000 og við tökum á móti því sem þú hefur fram að færa. Kær kveðja, starfsfólk Frístundabílsins |