SMELLA HÉR->    HANDBÓK FRÍSTUNDABÍLSINS
     | Til baka  Forsíða         
Um kaup á áskrift:


Hvernig skrái ég mig fyrir áskrift í Frístundabílinn?
Til þess að hægt sé að skrá fyrir áskrift í Frístundabílinn á netinu þarf forráðamaður að vera skráður í íbúagáttina. Til að skrá sig í íbúagáttina er farið inn á
Íbúagátt og valið nýskráning. Þá er hægt að velja um að fá lykilorðið sent í heimabanka eða sækja það í þjónustuverið að Strandgötu 6. Ef viðkomandi er þegar skráður er farið beint í innskráning. Þegar búið er að skrá sig í íbúagáttina er valinn hnappurinn "Frístundabíllinn" . Þá birtist eyðublað sem þarf að fylla út og er nauðsynlegt að fylla vel í alla reiti.  Hægt er að fá nánari upplýsingar og aðstoð við skráningu í íbúagáttina hjá Þjónustuveri í síma 585 5500

Vinsamlega smellið hér  „KAUPA ÁSKRIFT”  þá munt þú koma inná skráningaform sem ætti að leiða þig áfram. Einnig er hægt að koma á skrifstofu Hópbíla og ganga frá greiðslu þar m.a með debitkorti eða peningum. Eftir að búið er að skrá sig fer í gang ferli þar sem útbúið er ferðakort fyrir viðkomandi. Hægt er að nálgast ferðakortin á skrifstofu Hópbíla eftir kl. 15:00 daginn eftir að skráning hefur farið fram. Á kortinu verður ljósmynd af farþega ásamt nafni og kennitölu.

Ljósmynd skal senda sem viðhengi með skráningaformi og þarf hún helst að vera í passamyndastærð. Ef ekki er til passamynd þá er hægt að mæta á skrifstofu Hópbíla að Melabraut 18 og þar verður tekin mynd af viðkomandi. Einnig er hægt að senda okkur rafrænt einhverja skýra mynd á netfangið fristundabillinn@fristundabillinn.is en muna bara eftir að láta nafn og kennitölu fylgja með. Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlega hafið samband við skrifstofu í síma 599 6000.

AF GEFNU TILEFNI VILJUM VIÐ VEKJA ATHYGLI Á AÐ ÞEGAR ÞESSI MYND FRÁ VALITOR BIRTIST, ÞÁ VINSMALEGA SMELLIÐ Á LÍNUNA " ATH! ÞÚ VERÐUR AÐ SMELLA HÉR TIL AÐ KLÁRA SKRÁNINGU"  MEÐ KVEÐJU STARFSFÓLK FRÍSTUNDABÍLSINS 

  


Einnig er hægt að komast inn á heimasvæði Frístundabílsins í gegnum heimasíður fyrirtækjanna Alcan á Íslandi
www.riotintoalcan.is, N1 www.n1.is, Fjarðarkaupa www.fjardarkaup.is, Hópbíla www.hopbilar.is  ásamt heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is. Allar almennar upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við skrifstofu Hópbíla hf. í síma 599 6000.

                                

  
                                                   

                                             

      Frístundabíllinn ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6000 | Fax: 599 6001 | fristundabillinn@fristundabillinn.is | Kennitala: 520397-2999