SMELLA HÉR->    HANDBÓK FRÍSTUNDABÍLSINS
  | Til baka | Forsíða         

 Um leiðakerfi Frístundabílsins:

Skiptistöð verður við Íþróttahúsið Strandgötu. Ekið verður inn að öllum tómstunda- og íþróttasvæðum bæjarins á þann hátt að leitast verður við að koma í veg fyrir að farþegar þurfi að fara yfir umferðagötur þar sem hægt er að koma því við. Í hverjum bíl verður, auk bílstjóra, þjónustufulltrúi sem gegnir eftirlits- og öryggishlutverki og gætir þess að allt fari vel fram. Allar strætóstöðvar á leiðakerfi Frístundabílsins verða nýttar auk nýrra stöðva, svokallaðar „Vinkstöðvar“. Á slíkum stöðvum verða börnin að muna eftir því að vinka til bílstjórans svo hann stoppi bílinn fyrir þeim. Farþegar geta einnig farið út á Vinkstöðvum Vinkstöðvarnar erum allar merktar með flöggum á öllum leiðakortum.


                            


  
                                                   

                                             

      Frístundabíllinn ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6000 | Fax: 599 6001 | fristundabillinn@fristundabillinn.is | Kennitala: 520397-2999