| Um Vínkstöðvar
Hvað er vínkstöð? Hér um nýjung á Íslandi að ræða og spennandi að sjá hvernig tekst til. Hér er um að ræða sér merkta óhefbundna stoppustöð sem stöðvað er á ef notandi veifar/vínkar til bílstjórans þegar bíllinn nálgast. Vínkstöðvarnar eru staðsettar á milli strætóstoppistöðva á leiðum Frístundabílsins. Þær leiðir hafa verið vandlega yfirfarnar og staðsettar með fyllsta umferðaöryggi í huga. Vínkstöðvarnar eru sér merktar með skiltum sem bæði sýna mynd af Frístundabílnum á gulum sjálflýsandi grunni og einnig minna skilti sem sýnir tímatöflu og leiðakerfi viðkomandi leiðar. Merkingarnar eru festar á ljósastaura og hvetjum við ykkur foreldrar og forráðamenn að hjálpa börnunum okkar að átta sig á þessum nýju skiltum t.d taka léttan akstur um hverfið. Smellið hér á neðangreint og sjáið útlit á skiltum Vínsktöðva. Kær kveðja, starfsfólk Frístundabílsins
|