
Hópbílar hf. í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, Íshesta, Fjörukrána, Hertz bílaleiguna og Flugfélag Íslands hafa tekið höndum saman og bjóða núna landsmönnum spennandi afþreyingarvalkost í vetur. Um er að ræða valkost sem nefnist Hafnarfjarðarpakkinn: tveir fyrir einn. Í fyrrnefndum pakka er: Þorrinn, víkingaveislur, hesta-, ævintýra- og óvissuferðir, hótelgisting, flug og bílaleigubíll, álfaganga, sund og söfnin í Hafnarfirði og allt það sem hýri Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða. Hægt er að fá allar nánari upplýsingar hjá ofnagreindum aðilum. Einnig er hægt að sækja frekari upplýsingar með því að smella á merki (logo) Hópbíla hér til vinstri.
