
|
|
|
|
Hópbílar hf. hafa ætíð lagt mikla áherslu á að bjóða upp á nýja og nýlega bíla og því getum við stolt sagt frá því að meðalaldur hópbifreiða hjá Hópbílum hf. er ekki nema um 4 ár.
Við bjóðum upp á ýmsar stærðir og gerðir bíla. Rúturnar hafa allt frá 5 og upp í 71 sæti og má nefna Mercedes Benz Sprinter og ýmsar gerðir Renault bíla. Allir hafa bílarnir það sameiginlegt að vera nýir eða mjög nýlegir og eru sérlega vel útbúnir margs konar aukabúnaði, m.a. lyftur fyrir hjólastóla, allt til að gera ferðalagið öryggt og þægilegt.
Samkvæmt tölum frá Umferðarstofu er meðal hópbifreiðin hér á landi árgerð 1987 og því 17 ára gömul en þá er átt við bifreiðar sem gerðar eru til að flytja 18 farþega og fleiri. Af 742 bifreiðum eru einungis 198 eða 27% af árgerð 1993 eða nýrri, en 263 bílar eða 35% eldri en árgerð 1983. 150 bílar eru árgerð 1978 eða eldri sem veitir þeim undanþágu frá bifreiðagjaldi sem fornbílar.
Í fréttabréfi Samtaka ferðaþjónustunnar segir, að ljóst megi vera að rekstrargrunnur hópbifreiða sé slakur og þrátt fyrir ákveðnar tilslakanir stjórnvalda vanti mikið á að endurnýjun sé nægjanleg. Ef vel ætti að vera þyrfti að endurnýja um 5% af bílaflotanum á ári eða tæplega 40 bíla árlega. Segja samtökin að á síðasta ári hafi verið skráðir 24 nýir bílar þannig að talsvert vanti upp á slíka endurnýjun.
Hópbílar hf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími GSM 822-0080