Umhverfisstefna Hópbíla

Hópbílar er fyrirtæki sem með starfsemi sinni getur haft neikvæð áhrif á umhverfið og eru háð lögum og reglugerðum umhverfismála.  Sem fyrirtæki meðvitað um umhverfisáhrif starfseminnar munu Hópbílar stuðla að því að starfsemin hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið.

Hópbílar hafa einsett  sér að :

Endurskoða umhverfisstefnu fyrirtækisins reglulega og vinna að stöðugum umbótum á umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins. 

Stuðla að mengunarvörnum með:

  •      Vöktun umhverfisþátta í starfsemi fyrirtækisins  
  •      Flokka og lágmarka úrgang sem fellur til hjá fyrirtækinu. 
  •      Draga úr mengandi útblæstri frá bílum fyrirtækisins. 
  •      Stuðla að sjálfbærri þróun með minni notkun hráefna, endurnýtingu og endurnotkun.
  •      Velja birgja með tilliti til frammistöðu þeirra í umhverfismálum, svo framarlega sem verð og gæði leyfa.  
  •      Haga starfsemi fyrirtækisins í samræmi við gildandi lög og reglur um umhverfismál og fylgjast með breytingum á lögum og reglugerðum.
  •      Auka umhverfisvitund starfsmanna með fræðslu og þjálfun og hvetja starfsmenn til að framkvæma verk sín á umhverfisvænan hátt.
  •      Fyrirtækið uppfylli kröfur alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðalsins ISO 14001:2004 

                                     



Staðfesting á vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi 

Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins 2003 

 

Fegrunarnefnd Hfj
viðurkenning 2005 



                                                                          Hópbílar hf. |Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími 822 0080