Staðfesting á vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi 

Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins 2003 

 

Fegrunarnefnd Hfj
viðurkenning 2005 

ISO 14001

ISO-14001 er evrópskur og alþjóðlegur umhverfisstjórnunarstaðall. Þessi staðall var samþykktur af alþjóðlegu staðlasamtökunum 1996. Meðlimir samtakanna (CEN) eru skyldugir til að gera staðalinn að landstaðli að uppfylltum kröfum starfsreglna CEN. Meðlimir CEN eru : Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Lúxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Stóra-Bretland, Sviss, Svíþjóð og Þýskaland. Með alþjóðlegum stöðlum um stjórnun umhverfismála er ætlunin að láta fyrirtækjum í té verkfæri til að reka skilvirkt umhverfisstjórnunarkerfi, sem hægt er að samþætta öðrum stjórnunarkröfum, og veita fyrirtækjum þannig lið við að ná markmiðum sínum í umhverfis-og efnahagsmálum. Þessum stöðlum, sem og öðrum alþjóðastöðlum, er ekki ætlað að reisa tæknilegar viðskiptahindranir ellegar auka eða breyta lagalegum skyldum fyrirtækja. Í þessum alþjóðlega staðli eru tilgreindar kröfur til slíks umhverfisstjórnunarkerfis. Staðallinn var saminn með það fyrir augum að hann hentaði fyrirtækjum af öllum gerðum og stærðum og að hægt væri að laga hann að mismunandi landfræðilegum, menningarlegum og félagslegum aðstæðum.   




                                                                          Hópbílar hf. |Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími 822 0080