Hvers vegna umhverfisstjórnun í fyrirtækjum?
Fyrirtæki af öllum gerðum leitast í auknu mæli að standa vel að umhverfismálum og sýna góða frammistöðu á því sviði með því að stýra þeim áhrifum sem starfsemi þeirra, framleiðsluvörur eða þjónusta hafa á umhverfið. Þetta er gert með hliðsjón af umhverfismálastefnu og stefnumiðum sem fyrirtækin setja sér. Þessi viðleitni er í samræmi við sífellt strangari löggjöf og tilkomu efnahagsaðgerða og annarra ráðstafana sem stuðla að umhverfisvernd, auk þess sem áhugi hagsmunaaðila á umhverfismálum, þar á meðal sjálfbærri þróun, fer vaxandi. Stjórnun umhverfismála nær yfir ótal mörg svið, þar á meðal atriði sem snerta stjórnunarhætti og samkeppni. Með því að sýna fram á að tekist hafi að innleiða umhverfisstjórnun sem uppfyllir kröfu alþjóðastaðals geta fyrirtæki fullvissað hagsmunaaðila um að viðeigandi umhverfisstjórnunarkerfi sé fyrir hendi.
Hópbílar hf. |Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími 822 0080