Staðfesting á vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi 

Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins 2003 

 

Fegrunarnefnd Hfj
viðurkenning 2005 

BíóDísil umhverfisvænt eldsneyti
Hvað er BíóDísil? Lífrænt, endurnýjanlegt eldsneyti sem jafnan er unnið úr jurtaolíum, til dæmis repjufræjum og sólblómum. Repja er fóðurrófa, ræktuð sem dýrafóður. Repjuolía var algengt ljósmeti t.d. í Skandinavíu á 18. og 19. öld en vék síðan fyrir steinolíunni. Hráolía verður til í jarðlögum á milljónum ára. Góður repjuakur getur gefið af sér 1.200 lítra af lífrænni olíu á hektara sem myndi duga til að aka venjulegum fólksbíl 20.000 km (meðalnotkun heimilisbíls á Íslandi á ári). Vandalaust er að nota hreint bíódísil á bíla en erlendis er það jafnan blandað í venjulega dísilolíu og þannig verður það hérlendis (5% íblöndun). Með íblöndun er stuðlað að því að gera bíódísil samkeppnisfært í verði á eldsneytismarkaðinum en viðhalda samt jákvæðum eiginleikum eldsneytisins (vistænt, aukin smurgeta.

Hvers vegna BíóDísil?
Bíódísil mengar minna og smyr betur en venjuleg dísilolía. Koltvísýringslosun minnkar verulega þegar bíódísil er notuð í stað venjulegrar dísilolíu (dönsk rannsókn). Bíódísil myndar 94% minna af krabbameinsvaldandi efnum við bruna en venjuleg dísilolía (bandarísk rannsókn). Notkun bíódísil dregur verulega úr  rykmengun frá útblæstri. Brennsla 6% eldsneytisblöndu dregur til dæmis úr útblæstri fastefnisagna (particulates) um 20% (rannsóknir í Kanada, Þýskalandi og á Spáni). Smurgeta venjulegrar dísilolíu eykst umtalsvert með einungis 1-2% íblöndun bíódísil en við 4% íblöndun eykst smurgetan um allt að þriðjung (rannsóknir í Bandaríkjunum, Kanada og Þýskalandi).   
 



                                                                          Hópbílar hf. |Melabraut 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími 599-6000 | Fax 599-6001 | Vaktsími 822 0080