
Hvert er tilefnið?
Við byggjum á yfir 25 ára reynslu í því að þjónusta hvers kyns hópa, og höfum séð um hópaferðir fyrir nánast hvaða tilefni sem er. Þegar farið er í hópaferð, hvort sem er hér í Reykjavík og nágrenni, eða útfyrir höfuðborgarsvæðið þá höfum við rútur sem passa hverju og einu tilefni.
Á þessum árum höfum við öðlast mikla reynslu í því að þjónusta alla þá ólíku hópa sem til okkar leita, hvort sem það er að fara með leikskólakrakka í sveitaferð á vorin, með íþróttahópinn í keppnisferðalag norður í land eða þegar haldið er í óvissuferð með vinnustaðahópinn.
Rútuferðir
Hvort sem það þarf að bóka rútu til að fara með fótboltaliðið á Selfoss eða Akranes, með skíðahópinn til Akureyrar, eða skólahópinn í útskriftarferð,
þá leysum við málið. Við viljum að allir hafi gaman af því að koma um borð í hópbílana okkar og bjóðum að sjálfsögðu uppá frítt net um borð í öllum rútum.
Allir okkar hópbílar eru yfirfarnir reglulega á okkar eigin þjónustuverkstæði sem tryggir að þeir eru tilbúnir í hvaða ferð sem er þegar þér hentar.

Hópferðir
Ef til stendur að setja upp hópaferð fyrir ýmist félagasamtök eða starfsmannahópa, t.d. dagsferð um Snæfellsnes eða kannski heimsókn í Húsafell, þá leggjum við okkur fram um að leysa málin með ykkur eins og kostur er. Að auki þá höfum við átt í góðu samstarfi við fjölda aðila til margra ára sem sérhæfa sig í því að skipuleggja t.d. hópefli fyrir starfsmannahópa eða hvataferðir fyrir fyrirtæki þar sem hvert smáatriði skiptir máli.