Mínar síður – skilmálar

Vinnsla persónuupplýsinga vegna akstursþjónustu Hópbíla byggir á heimild í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011. Hún samræmist því ákvæðum 3. og 5. tl. 9. gr. og 7. tl. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Með því að óska eftir aðgangi að Mínum síðum og skrá inn umbeðnar persónuupplýsingar á vefsíðu akstursþjónustu Hópbíla staðfestir þú um leið og þú ert samþykk(ur) að persónuupplýsingar sem þú skráir inn séu vistaðar í gagnagrunni vefsíðunnar og að heimilt sé að vinna þær.  Nánari útskýringar á vinnslu persónuupplýsinga er að finna á stefnusíðu Hópbíla og fræðslubréfi um vinnslu persónuupplýsinga í akstursþjónustu fatlaðs fólks. 

Ef þriji aðili, s.s. foreldri, forráðamaður, forstöðumaður sambýla, forstöðumaður frístundaheimila eða annar sá þriðji aðili sem sinnir þjónustu við notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks, óskar eftir aðgangi að Mínum síðum fyrir hönd notanda akstursþjónustunnar, skal sá aðili sérstaklega kynna sér persónuverndarstefnu Hópbíla og tryggja að notkun viðkomandi á mínum síðum og þá um leið persónuupplýsingum notandans, samræmist persónuverndarlögum.